15:03
Fjármálamiðstöðin Ísland
Ris og fall hlutabréfasjóðanna
Fjármálamiðstöðin Ísland

Í þessari þáttaröð fjallar Magnús Sveinn Helgason sagnfræðingur um sögu íslenska verðbréfamarkaðarins í aðdraganda fjármálabólunnar og hrunsins, hugsjónir frumherja hlutabréfamarkaðar, hugmyndir manna um markaðinn og afdrif þeirra.

Í þessum þætti er fjallað um ris hlutabréfasjóðanna í upphafi tíunda áratugarins og umbreytingu þeirra í skuldsett yfirtökufélög eftir aldamót. Umsjón: Magnús Sveinn Helgason.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 48 mín.
,