Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Helga Bragadóttir flytur.
Í þættinum er fjallað um ímyndaðar og raunverulegar heimskautaferðir og lesið úr eftirfarandi bókum: Vegfarinn eftir Hölderlin ; Örlagastundir mannkyns eftir Zweig ; Loftsiglingin eftir Per Olaf Sundman ; Göngulag tímans eftir Sten Naddy. Lesari með umsjónarmanni er Svala Arnardóttir.
Umsjón: Arthur Björgvin Bollason.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Veðurstofa Íslands.
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Í fimmta þætti RÚS fjallar Gunnar Þorri Pétursson um bók Guðrúnar Finnbogadóttur, Til heljar og heim - þrjú ár í Rússlandi, frá árinu 1994. Lessri ásamt umsjónarmanni er Guðrún Gísladóttir. Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Höskuldur Kári Schram ræðir við Hönnu Katrínu Friðriksson þingmann Viðreisnar, Kjartan Magnússon borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Andrés Inga Jónsson þingmann Pírata um efnahagsmál, ríkisstjórnarsamstarfið, húsnæðismál, rafbyssur og verðbólgu. Tæknimaður Kári Guðmundsson.
Hádegisútvarp í umsjón þular.
Íslenskt lag eða tónverk.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Xi Jinping varð nýlega sá fyrsti í áratugi til að vera kjörinn forseti Kína þriðja kjörtímabilið í röð. Stefna hans í utanríkismálum hefur verið að berjast gegn því sem hann hefur talið vera viðleitni Bandaríkjamanna til að halda aftur af Kína. Og til að einangrast ekki frá Vesturlöndum er mikilvægt fyrir Kína að vera í tengslum við Rússland. Kínverjar hafa reynt að tala fyrir friði í Úkraínu en líklega hentar þeim best að stríðið standi sem lengst, segir Helgi Steinar Gunnlaugsson sérfræðingur í málefnum Kína en Hallgrímur Indriðason ræddi við hann og fjallar um stöðu Kína og Xi forseta. Á valdatíma sínum hefur Xi hert tökin heima fyrir en heimsóknin til Rússlands í vikunni bendir til að hann ætli að láta enn frekar að sér kveða á alþjóðavettvangi.
Í síðari hluta þáttarins ætlum við að skoða hvernig Sádar nýta olíuauðinn en sádí-arabíska ríkisolíufyrirtækið Aramco skilaði methagnaði í fyrra, sem var jafnvirði 22.500 milljarða íslenskra króna. Það er næstum helmingi meiri hagnaður en í fyrra og hefur aldrei verið meiri. Og eitt af því sem Sádar áforma að reisa er framtíðarborg, 170 kílómetra löng samfelld lína háhýsa og skýjakljúfa þar sem verða engar götur og engir bílar en alls um níu milljónir íbúa. Sunna Valgerðardóttir leit á framtíðaráform olíuþjóðarinnar miklu og ræddi við arkitekt með brennandi áhuga á borgarskipulagi, um línuborgina í eyðimörkinni, sem hljómar eiginlega frekar eins og uppkast að vísindaskáldsögu, heldur en raunhæf áætlun um framtíðarborg þar sem allt á að ganga fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum.
Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum var í þetta sinn Þóra Kolbrá Sigurðardóttir, ritstjóri matarvefs mbl.is. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Þóra sagði frá forritinu Blinkist og talaði um eftirfarandi bækur og höfund:
Á vit hins ókunna e. Erlend Haraldsson
The 5 A.M. Club e. Robin Sharma
Astrid Lindgren, Enyd Blydon og J.K. Rowling
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Ægir Sindri Bjarnason rekur tónlistarsögu sína og leiðina úr trommunum inn í tilraunakenndan tölvuspuna. Umsjón: Árni Matthíasson.
Lagalisti:
Crooked Bangs - maybe a bit insecure
The Earth Grew Uncertain - forgetting that it could kill me (æ4.1.1)
Af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur? - Blind bisexual goose named thomas who spent six years in a love triangle with two swans and helped raise 68 babies dies at the ripe old age of 40
tem end lopo - mual erc
the portal rose - the dreams is talk to you
accepting uncertainty - submit to the rhythms of your speech
accepting uncertainty - devastating insomnia (feat. MSEA)
Þættir á vegum háskólanema.
Leiðbeinandi: Ásdís Emilsdóttir Petersen.
Hvers vegna finnst fólki eftirsóknarvert og jafnvel gaman að horfa á hryllingsmyndir og finna til hryllings? Í þættinum er rætt við Lilju Sif Þorsteinsdóttur sálfræðing og jógakennara og myndlistarmanninn Jón B.K. Ransu um það hvers vegna sumir laðast meira að hryllingi en aðrir.
Þáttagerð: Steinunn Rósa Sturludóttir, meistaranemi í bókmenntafræðum. Leiðbeinandi: Dr. Ásdís Emilsdóttir Petersen.
Í þáttunum skoðar umsjónarmaður eyðingu mannvirkja og umhverfis í átökum ólíkra hópa, á ólíkum tímum í sögunni. Við kynnumst byggingarlistinni sem táknmynd menningar og skotmarki menningarhreinsana. Við könnum hlutskipti hennar í hryðjuverkum, byltingum, landvinningastríðum og við aðskilnað samfélaga. Við kynnumst líka byggingarlistinni sjálfri. Fegurðinni. Tækninni. Notagildinu. Þessum þremur grunnstoðum arkitektúrsins sem rómverski arkitektinn og fræðimaðurinn Vítrúvíus skrifaði um á fyrstu öld fyrir Krist.
Umsjón: Hilmar Hildar Magnúsarson.
Í sjötta þætti höldum við til landsins milli fljótanna, Mesópótamíu, og lítum á hvernig hin svokallaða vagga siðmenningar hefur verið vanvirt í gegnum tíðina. Ekki síst af stórveldum veraldarsögunnar. Við skoðum fornleifauppgröft og fjársjóðsleitir og spáum í hvernig menningararfurinn hefur verið notaður við byggingu ríkisvalds og sjálfsmyndar. Við skoðum innrás Bandaríkjamanna í Írak árið 2003, ringulreiðina sem hún olli og upprisu öfgaafla í kjölfarið. Afla sem hafa haldið svæðinu í helgreipum undanfarin ár. Drepið fólk. Lagt menningararfinn í rúst. Og óspart nýtt sér netið og samfélagsmiðla til að vekja ótta og hrylling, breiða út hugmyndafræðina og afla nýrra fylgismanna.
Umsjón: Hilmar Hildar Magnúsarson.
Lesarar í þættinum ásamt Hilmari: Kristófer Kvaran og Sigríður Birna Valsdóttir.
Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir.
Orðanna origami á Rás 1. Hugað að öllu mögulegu á sviði bókmenntanna.
Í þættinum heyrast brot úr tveimur erindum sem haldin voru á Barnabókmenntaráðstefnu Gerðubergs árið 2023. Annars vegar brot úr fyrirlestri Brynhildar Björnsdóttur bókmenntafræðings og fjölmiðlakonu sem bar yfirskriftina "Hvar er mamma þín Einar Áskell" og fjallaði um fjarveru mæðra í barnabókum. Þá heyrast líka brot úr fyrirlestri Sólveigar Rósar foreldra - og uppeldisfræðings um birtingarmyndir regnbogans í barnabókum á Íslandi. Einnig er í þættinum rætt við Auði Aðalsteinsdóttur bókmenntafræðing um framtíðarfagurfræði á framtíðarlausum tímum en Auður flutti erindi með þessum titli í málstofu um sögu bókmenntagagnrýni og sögu hennar á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands 10. mars síðastliðinn.
Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir
Leifur Hauksson fjallar um tímann á breiðum grunni og fær til sín fræðimenn og fleira fólk til að ræða um tímann og ótímann.
Leifur Hauksson fjallar um tímann á breiðum grunni og fær til sín fræðimenn og fleira fólk til að ræða um tímann og ótímann.
Rætt við Guðmund Gunnar Pétursson, næturvörð í Arnarhvoli, um starfið.
Rætt við Júlíus K. Björnsson, sálfræðing, um líkamsklukkuna.
Kvöldfréttir útvarps
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Síðari þáttur um Ödu Blackjack, unga Inúítakonu sem endaði alein á eyðiey á norðurhjara eftir að hafa slegist í för með leiðangri á vegum landkönnuðarins Vilhjálms Stefánssonar 1921.
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Kvartett Bill Evans og Stan Getz flytur lögin Melinda, My Heart Stood Still, Grandfather's Waltz, But Beautiful, Night and Day og Funkallero. Kvartett Oscars Peterson flytur lögin Backyard Blues, Nigerian Marketplace, Satin Doll, Hymn To Freedom og Sushi. Ella Fitzgerald syngur með hinum og þessum hljómsveitum lögin Sophisticated Lady, Autumn In New York, Midnight Sun, I Can't Get Started, Stormy Weather og Blues In The Night.
Fjallað um landnám Íslendinga í Vesturheimi. Lesið úr bréfum og frásögnum sem birtust í blöðum og bókum.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
(Áður á dagskrá 1996)
Margrét Björgvinsdóttir les úr „Játningum landnemadóttur" eftir Laura Salversson sem kom út í íslenskri þýðingu 1994. Rætt er við Guðrúnu B. Guðsteinsdóttur, lektor í ensku við Háskóla Íslands um helstu núlifandi rithöfunda meðal Vestur-Íslendinga.
Umsjón: Anna Margrét Sigurðardóttir.
Frásöguþættir.
Umsjón: Ragnheiður Viggósdóttir.
Að leggja hönd á plóginn. Frásögn eftir Marinó Laxdal Stefánsson, kennara.
Gils Guðmundsson, rithöfundur les.
Umsjón: Ragnheiður Viggósdóttir.
Frá 1. mars 1983.
Veðurstofa Íslands.
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan gramsar í pappakössum með 45 snúninga plötum útvarpsins og dregur fram hitt og þetta, bæði gamalt og rispað. Nora Brockstedt og Jens Book-Jenssen syngja sænska valsa með norskum textum; Ivan Mellgård og Four Jacks flytja danskar útgáfur af vinsælum bandarískum lögum; Patti Page syngur lagið um fiðrildin, margraddað með sjálfri sér; Dorothy Collins syngur Tico Tico með hljómsveit eiginmannsins, Raymond Scott og Chet Atkins leikur á gítarinn sinn, Whispering og In a little spanish town. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Höskuldur Kári Schram ræðir við Hönnu Katrínu Friðriksson þingmann Viðreisnar, Kjartan Magnússon borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Andrés Inga Jónsson þingmann Pírata um efnahagsmál, ríkisstjórnarsamstarfið, húsnæðismál, rafbyssur og verðbólgu. Tæknimaður Kári Guðmundsson.
Útvarpsfréttir.
Tónlist af ýmsu tagi.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Erna Hrönn söngkona, táknmálsfræðingur og fjölmiðlakona var gestur Felix í fimmunni í Fram og til baka. Hún sagði okkur af mikilvægustu já-unum í lífinu sem voru allt frá því að fá að komast í söngnám níu ára og yfir í jáið sem hún fékk frá Virk árið 2019, þá algjörlega búin á sál og líkama.
Síðan kom menntaskólaneminn Heimir Árni Erlendsson úr Landeyjunum en hann sló í gegn í Gettu betur með liði FSu. Heimir Árni er líka mikill Eurovision aðdáandi og sagði okkur af uppáhaldslögunum sínum í keppninni í ár
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Atli Már Steinarsson rabbar við hlustendur og leikur létta tónlist.
Rúnar Róbertsson var gestastjórnandi í dag.
Lagalistinn:
Sálin hans Jóns míns - Sól, Ég hef sögu að segja þér
Freyjólfur - Dönsum ein
The Housemartins - Happy Hour
Alex G - Runner
FM Belfast og Jóhann Helgason - Feel So Fine (Hljómskálinn)
Jóhann Helgason - Bid Me To Live
eee gee - More than a Woman
The Rolling Stones - Under My Thumb
Happy Mondays - Step On
Kylie Minouge - In Your Eyes
Mammút - Salt
Cornershop - Brimful of Asha (Norman Cook Remix)
U2 - Invisible (Songs of surrender)
Markús - É bisst assökunar
Rihanna - Lift Me Up
Una Torfadóttir - Það sýnir sig (Studio RUV)
Dikta - From Now On
Hafdís Huld - Kónguló
14:00
Langi Seli og Skuggarnir - OK.
Hozier - Eat Your Young
Bomfunk Mc's - Freestyler
Bubbi Morthens - Fallegur Dagur
The Jam - Going Underground
Loreen - Tattoo
Eyjólfur Kristjánsson - Dagar
Duran Duran - Union of the snake
Sycamore Tree - Colors
Red hot chili peppers - Scar Tissue
Stjórnin - Allt sem ég þrái
Dua Lipa og Elton John - Cold Heart (PNAU Remix)
Fleetwood Mac - Little Lies
Klassart - Gamli Grafreiturinn
15:00
Friðrik Dór - Hringd'í mig
The Clash - Bankrobber
Moses Hightower - Nýfallið regn
Eurythmics - Right by your side
Júlí Heiðar og Kristmundur Axel - Ég er
The Power station - Some like it hot
Milky Chance - Stolen Dance
Mugison - Kletturinn
Diljá - Power
Todmobile - Pöddulagið
Systur - Furðuverur
Snap! - Rythm is a dancer
Á móti sól - Mínútur
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 18. - 25. mars 2023.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Rósa Birgitta Ísfeld.
Fréttastofa RÚV.
Lovísa Rut Kristjánsdóttir tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Lovísu er tónlistarmaðurinn Fannar Ingi Friðþjófsson.
Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.