20. september 2024
Gestir kvöldsins eru forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Bergur Ebbi Benediktsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson.
Gestir þáttarins eru Arnar Gunnlaugsson, Hanna Katrín Friðriksson og Þórey Birgisdóttir.
Berglind Festival ræðir við þjóðina um kúltúrbörn.
Leikhópurinn úr Litlu hryllingsbúðinni flytur lagið Da dú í upphafi þáttar og lokar svo þættinum með laginu Snögglega Baldur.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.