26. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Gísli Örn Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Gestir kvöldsins eru Svandís Svavarsdóttir, Vivian Ólafsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Berglind Festival tekst á við eina stærstu spurningu samtímans: Er siðferðislega réttlætanlegt að halla sætinu í flugvél?
Inspector Spacetime og Unnsteinn frumflytja lagið Kysstu mig.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.