Tækifærin
Fjallað er um hvernig sveppir og afurðir úr svepparíkinu geta stuðlað að umbótum í umhverfismálum. Fylgst er með nýsköpunarfyrirtækinu Svepparíkið þar sem Unnur Kolka Leifsdóttir…
Fjallað er um varasama eiginleika sveppa, svo sem eitraða sveppi, sníkjusveppi og myglusveppi. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, doktor í sveppafræðum, kynnir eitraða sveppi sem finnast í íslenskri náttúru. Brynja Hrafnkelsdóttir, sérfræðingur hjá Skógræktinni, sýnir sníkjusveppi sem leggjast á trjágróður. Í umfjöllun um myglusveppi er m.a. rætt við Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur líffræðing.

Heimildarþáttaröð þar sem sveppir á Íslandi eru skoðaðir frá sjónarhorni vísinda, menningar, fagurfræði og sjálfbærni. Dagskrárgerð: Anna Þóra Steinþórsdóttir. Umsjón: Erna Kanema Mashinkila.