1. Tökum á Loft!
Við kynnumst hinni ævafornu veru Loft sem hefur fengið að lifa óáreitt í milljónir ára þangað til jarðormar skemma allt. Loft tapar klútnum sínum og þar með uppsprettu galdrarmáttar…
Áróra er 7 ára í dag og Loft á afmæli í ár! Það er samt löngu hætt að telja hvað það er gamalt. Sunna og Máni gera við bilað útvarp en Loft gæti nú tekið þau til fyrirmyndar.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.