1. Velkomin í bekkinn
Randalín byrjar í nýjum skóla og gerir eitraða og örvæntingarfulla tilraun til að ná athygli Munda og verða vinkona hans.
Randalín og Mundi leita til dávalds til að bjarga Randalín frá stórhættulegum ávana og kynnast hinni mögnuðu Grétu Hansen.

Vinirnir Randalín og Mundi lenda í miklum ævintýrum í jólamánuðinum, gera góðverk og óvart skemmdarverk. Þau leysa ráðgátu um grunsamlegan nágranna og hjálpa hælisleitendum á flótta, leita aðstoðar spákonu sem á kristalskúlu, fást við nágranna sem á snák og eltast við jólasvein sem dúkkar upp á ólíklegustu stöðum. Leikstjórn: Silja Hauksdóttir og ILmur Kristjánsdóttir. Meðal leikenda eru: Kría Burgess, Gunnar Erik Snorrason, Birta Hall, Ægir Chang Hlésson, Hilmir Snær Guðnason, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Katla Margrét Þorgeirssdóttir, Jörundur Ragnarsson og Harpa Arnardóttir.