Með okkar augum 13

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 6 af 6

Sjónvarpsmaðurinn Gummi Ben kemur í viðtal. Það verður klofað upp á Sólheimajökul með Teiti Þorkelssyni leiðsögumanni. Vigdís Hafliðadóttir leyfir okkur að heyra uppáhaldslögin sín. Við fræðumst um sölu á verkum fatlaðra listamanna sem hefur náð nýjum hæðum. Við förum í borðhokkí. Og við förum í vinnuna með Matthíasi Þór Sverrissyni á Skjalasafninu á Egilsstöðum. Arna Sigríður Albertsdóttir gefur heilsuráð í Grasagarðinum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Með okkar augum 13

Þrettánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,