Með okkar augum 13

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 3 af 6

Keramiklistakonan Kogga segir frá lífi sínu og list. Það verður farið í Hernámssetrið í Hvalfirði. Við kynnum okkur listiðkun Daníels Björnssonar. Við förum á golfæfingu fyrir fatlað fólk hjá Keili. Elín Hall leyfir okkur að heyra uppáhaldslögin sín. Við förum í vinnuna með Björgvin Axel Ólafssyni hjá Innnesi. Arna Sigríður Albertsdóttir gefur heilsueflandi ráð.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Með okkar augum 13

Þrettánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,