Landinn 25. maí 2025
Í Landanum í kvöld kíkjum við á risastórt verkefni í Vestmannaeyjum í tengslum við laxeldi. Við mælum jarðhita í Ölfusi, við hittum ungan sleggjukastara í Breiðholti og búum til tónlist…
Í Landanum í kvöld kynnumst við tveimur Dýrfinnum sem koma hvor úr sínum heimshlutanum, við hittum mann sem gekk yfir landið, við skoðum vefnað sem er eins og var á landnámsöld og við hittum krakka í Skagafirði sem tóku málin í sínar hendur þegar leiktækin á skólalóðinni voru orðin léleg.

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs - Drífudóttir og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Elvar Örn Egilsson, Hjalti Stefánsson og Björgvin Kolbeinsson.