Jólalandinn 2020
Í jólaþætti Landans í ár verður meðal annars kíkt í heimsókn til Sindra Ploder, ungs myndlistarmanns sem hefur komið víða við þrátt fyrir ungan aldur. Hann undirbýr nú fyrstu einkasýningu…
Í fyrsta Landaþætti vetrarins sláumst við í för með konu sem ætlar að vatnslitamála alla vita landins, við hittum ungan búningahönnuð, förum í myndatöku í Vestmannaeyjum, smíðum skógarskýli í Selskógi og kynnum okkur leikritið Sunnefu sem frumsýnt var í sláturhúsinu á Egilsstöðum um helgina.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórgunnur Oddsdóttir, Viktoría Hermannsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon, Gunnlaugur Starri Gylfason og Jóhannes Jónsson.