Jólalandinn 2020
Í jólaþætti Landans í ár verður meðal annars kíkt í heimsókn til Sindra Ploder, ungs myndlistarmanns sem hefur komið víða við þrátt fyrir ungan aldur. Hann undirbýr nú fyrstu einkasýningu…
Landinn fjallar um það hvernig æ fleiri kjósa að kaupa notuð barnaföt frekar en ný. Við heimsækjum brúðuleikhúsið Handbendi á Hvammstanga, teljum fugla með grunnskólanemum á laugarvatni, förum á myndlistarnámskeið á Akranesi og hittum hressar körfuboltakonur sem kenna sig við Michael Jordan.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórgunnur Oddsdóttir, Viktoría Hermannsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon, Gunnlaugur Starri Gylfason og Jóhannes Jónsson.