Kveikur

Heimsókn til eiganda WOW og arðgreiðslur ríkisstyrktra fyrirtækja

Michele Roosevelt Edwards keypti flugfélagið WOW air og vill endurreisa það. Hún vill líka komast yfir Icelandair. Kveikur heimsótti eiganda fallna flugfélagsins á sveitasetur í Virginíu.

Í seinna hluta þáttarins er fjallað um aðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19 í þágu fyrirtækja. Stjórnvöld hafa styrkt ferðaþjónustufyrirtæki um milljarða króna til greiða laun fólks á uppsagnarfresti. Sum fyrirtækin höfðu árin fyrir faraldurinn greitt hundruð milljóna króna, jafnvel milljarða, í arð. Kveikur gerði úttekt á arðgreiðslum þeirra 50 fyrirtækja sem mest hafa fengið í styrk.

Frumsýnt

4. feb. 2021

Aðgengilegt til

1. júní 2030
Kveikur

Kveikur

Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.

Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Brynja Þorgeirsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Ingvar Haukur Guðmundsson og Árni Þór Theodórsson.

Þættir

,