Kiljan

Leyft öllum aldurshópum

30. sept 2026

Kiljan er farin aftur af stað og það er stór bókavertíð framundan. Nanna Rögnvaldardóttir segir okkur frá þriðju og síðustu bókinni í þríleik sínum um Bergþóru í Hvömmum, Eitur í augum nefnist bókin, það er spennusaga sem gerist í íslenskri sveit á 18. öld. Björn Halldórsson ræðir nýja skáldsögu sína heitir Ókunnugt fólk. Við hittum Bjarna Harðarson sem hefur ferðast á framandi og jafnvel háskalegar slóðir á ævi sinni og segir frá því í bókinni Aleinn og mállaus. Skáldið Jakub Stachowiak spjallar við okkur um að yrkja á íslensku og flytur kvæði úr ljóðabókinni Meðan borgin blánar. Í Bókum og stöðum förum við á sandana miklu í Skaftafellssýslum. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Hvíld eftir Ragnheiði Gestsdóttur, Kvenskörunga á Grand Hotel efti Ruth Kvarnström-Jones og Bestu vini eftir Blæ Guðmundsdóttur og Evu Rún Þorgeirsdóttur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,