Össur og Heiðbjört
Össur gefur sig allan í starf skólahljómsveitar og hefur verið ótal mörgum nemendum fyrirmynd. Heiðbjört hefur um árabil sinnt ýmsum sjálfboðaliðastörfum, meðal annars fyrir börn og…
Ninna er kennari sem gefur allt sitt í starfið og mætir nemendum sínum á jafningjagrundvelli með jákvæðni og dýrmæt gildi að leiðarljósi. Viðar hefur um árabil starfað meðal heimilislausra og hefur einstakt lag á að nálgast fólk af virðingu.

Önnur þáttaröð íslensku heimildarþáttanna þar sem við heyrum einstakar sögur fólks sem hefur látið gott af sér leiða á óeigingjarnan hátt í gegnum starf sitt eða daglegt líf. Í hverjum þætti eru sagðar sögur tveggja einstaklinga sem hafa lagt sig fram við að bæta og efla samfélagið á jákvæðan hátt. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.