Fyrri hluti
Kristján og Ásdís Rósa reyna að aðlagast nýjum og framandi aðstæðum í Tókýó, stærstu borg heims. Þau kanna borgina áður en þau halda til eyjarinnar Hokkaídó þar sem stórbrotin náttúrufegurð…
Kristján og Ásdís Rósa ná sér aftur á strik eftir erfiðan hjóladag og nýr kafli ferðalagsins hefst. Forn menning og djúpstæð trú Japana setur mark sitt á upplifun þeirra, opnar skilningarvitin og fær þau til að njóta ferðalagsins til hins ítrasta.

Íslenskir heimildarþættir um ferðalag Hringfarans, Kristjáns Gíslasonar, og Ásdísar Rósu, eiginkonu hans. Síðla árs 2023 ferðuðust þau á mótorhjóli um Japan. Ferðalagið reyndi á hjónin á ýmsa vegu og framandi venjur, menning og tungumál gerðu þeim erfitt fyrir. En smám saman lærðu þau á lífstaktinn og nutu ferðalagsins. Þegar upp var staðið reyndist Japan eitt eftirminnilegasta landið sem Hringfarinn hefur heimsótt.