8. Harðsnúna Hanna - Ðe lónlí blú bojs
Stórskotalið íslenskrar stemningar og sjöu-skaðræðis, Ðe lónlí blú bojs, er tekið fyrir. Smellur þeirra, Harðsnúna Hanna, eftir Gunnar Þórðarson og Þorstein Eggertsson, hefur lifað…
Írafár kom eins og stormsveipur inn í íslenskan tónlistarbransa í kringum aldamótin. Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla stórsmell hljómsveitarinnar, Fingur, eftir Vigni Snæ Vigfússon og Birgittu Haukdal, og kryfja hann til mergjar í bland við umræðu um hártísku og vinsæla núðlurétti. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.

Þættir þar sem Snorri Helgason og Bergur Ebbi fjalla um íslensk dægurlög og setja í samhengi við tísku og tíðaranda. Þættirnir eru byggðir á vinsælu hlaðvarpi þeirra sem hóf göngu sína árið 2014.