Andri á flandri

Vesturland

Í Stykkishólmi skoðar Andri afslappað bæjarlífið í bongóblíðu. Hann rekur nefið inn á Vatnsminjasafnið og forvitnast um hvað í ósköpunum það er. Andri og Tómas kíkja í hádegismat til Kela "Rokk" kokks á Langholti á Snæfellsnesi. Þar þarf Andri flaka nýveiddan fisk upp á eigin spýtur. Til fiskilyktinni af sér dýfir Andri sér svo til sunds í Lýsuhólalauginni lífrænu. Í Borgafirði ramba þeir Andri og Tómas svo inn í hjólahýsahverfið við Galtarholt og er sem opnist gátt inn í aðra áður óséða veröld.

Frumsýnt

12. ágúst 2011

Aðgengilegt til

8. des. 2024
Andri á flandri

Andri á flandri

Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson fór á flakk um Ísland í sumar ásamt bolabítnum Tómasi á forláta húsbíl, Litla kút nafni. Saman keyrðu vinirnir krókaleiðir kringum landið í leit því skrýtna og skemmtilega. Hvar er Valdi koppasali í dag? Hefur Palli í Hlíð í raun og veru skotið og drepið allar tegundir af spendýrum á Íslandi? Er lyklakippusafn Grétu á Reyðarfirði á heimsmælikvarða? Hver er meðalgreindarvísitalan á Bíladögum á Akureyri? Er hægt keyra húsbíl yfir jökulsá? Við þessum og fleiri spurningum fást loks svör því Andri fer sannarlega ótroðnar slóðir á ferðalagi sínu um landshlutana sex.

Þættir

,