Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Helga Margrét Höskuldsdóttir, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Kristinn Óli Haraldsson. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Lið Menntaskólans á Ísafirði og Verzlunarskóla Íslands mætast. Keppendur frá Menntaskólanum á Ísafirði : Daði Hrafn Þorvarðarson, Mariann Raehni og Saga Líf Ágústsdóttir. Keppendur frá Verzlunarskóla Íslands: Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Hafliði Hafþórsson og Viktor Kolbeinn Sigurðarson
Íslensk þáttaröð í átta hlutum um líf fólks sem býr við skerta starfsgetu og/eða líkamlega fötlun af ýmsum toga. Í þáttunum fylgjumst við með fólki á öllum aldri, víða um land, í ýmsum störfum og með ólíka fötlun og fjölskyldugerð. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja.
Í þessum þætti segir Brandur Bryndísarson Karlsson sögu sína. Þrátt fyrir að hafa misst máttinn í líkamanum á þrítugsaldri upplifir hann nú drauma sína að fullu.
Þáttaröð þar sem Gunnlaugur Helgason húsasmiður leiðir áhorfendur í allan sannleika um hver fyrstu skrefin eru þegar taka á húsnæði í gegn. Gulli hefur verið fengin til þess að koma lagi á kjallara í 65 ára gömlu húsi í Reykjavík. Óþefur og ýmis konar skordýr hafa hrjáð þá sem kjallarinn hefur hýst um nokkurn tíma og greinilegt er að húsið er komið á tíma. Undir leiðsögn Gulla og fagmanna á hverju sviði vinna íbúar og eigendur húsnæðisins, ásamt vinum og ættingjum að breytingunum. Dagskrárgerð: Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Framleiðandi: Krummafilms.
Hvað leynist í veggjunum? Þegar Gulli Helga og félagar byrja að rífa niður veggi og slípa gólf kemur í ljós skemmd á milli hæða. Þar hefur greinilega verið leki og nú gefur að líta morkið timbur og myglusvepp sem koma verður böndunum yfir.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er hræddur um að börnin sín muni elska vélmenna-barnfóstruna meira en sig. Hann verður að stoppa vélmennið áður en það gerist!
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Fjórtánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Við kynnumst starfi Atla Más í Húsdýragarðinum, sjáum afrekskonuna Sigrúnu í sundi, upplifum náttúrutöfra Raufarhólshellis auk þess sem Ísak Óli bróderar. Dagskrárliðurinn Smakkið snýr aftur og nýi dagskrárliðurinn Tvennan er kynntur til leiks þar sem rætt er við fólk sem tengist tryggðaböndum. Að þessu sinni er rætt við feðgana Egil Helgason og Kára Egilsson. Loks kynnumst við samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Nýir heimildarþættir þar sem fjallað er um ýmislegt markvert úr heimi íslenskrar kvikmyndagerðar. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.
Fjallað er um tvær kvikmyndir sem stóðu upp úr í stuttmyndakeppninni Sprettfiskur 2024, sem er hluti af Stockfish-hátíðinni. Þetta er annars vegar tilraunamyndin Flökkusinfónía eftir Jóní Jónsdóttur og Eirúnu Sigurðardóttur og hins vegar leikna stuttmyndin Fár eftir Gunni Martinsdóttur Schlüter. Sýnd eru brot úr báðum myndunum og rætt við leikstjórana.
Upptaka frá árlegri hönnunarkeppni véla- og iðnverkfræðinema sem var haldin í Hörpu 3. febrúar. Keppnin snýst um að koma heimatilbúnum farartækjum eftir þrautabraut en það reynir á nákvæmni, hraða og útsjónarsemi. Dagskrárgerð: Stefán Drengsson.
Sænskir heimildarþættir frá 2023. Felix hefur í mörg ár orðið fyrir áreitni í gegnum nafnlaus smáskilaboð. Sendandinn ætlar ekki að gefast upp fyrr en hann hefur lagt líf Felix í rúst. Hver er á bak við skilaboðin? Hvað hefur Felix gert og getur hann stoppað þetta? Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Íslensk þáttaröð frá 2021 sem gerist á árunum 1983-91. Vinahjón gera upp gamlan togara og fara í útgerð. Allt gengur vel þar til kvótakerfið kemur til sögunnar og setur líf hjónanna sem og allra landsmanna í uppnám. Með aðalhlutverk fara Nína Dögg Filippusdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Guðjón Davíð Karlsson og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna.
Teymið hittist allt til að gera upp málin yfir aðeins of mörgum drykkjum.
Önnur þáttaröð áströlsku spennuþáttanna um Meghan og Agöthu. Tvö ár eru síðan þær hittust fyrir tilviljun með ófyrirséðum afleiðingum og nú situr Meghan í gæsluvarðhaldi fyrir morð. Ýmislegt kemur í ljós við rannsókn málsins, þar á meðal gríðarstórt leyndarmál Agöthu. Aðalhlutverk: Jessica De Gouw, Laura Carmichael og Ryan Corr. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.