Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Tíunda þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.
Leikararnir Karl Ágúst Úlfsson, Randver Þorláksson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason sýna áhorfendum samtíðaviðburði frá nýju sjónarhorni. Stjón upptöku: Björn Emilsson.e.
Tónlistarþáttur frá 1988 þar sem fjallað er um innlend og erlend dægurlög. Umsjón: Jón Ólafsson, Steingrímur S. Ólafsson, Stefán Hilmarsson og Anna Björk Birgisdóttir. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.
Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
Heimildamynd um komu panda í dýragarðinn í Kaupmannahöfn. Fylgst er með baráttunni fyrir að fá pöndurnar til landsins þar sem drottningin, forsætisráðherrann og fleiri koma við sögu.
Norskir gamanþættir teknir upp í Karls Jóhanns-götu í Osló. Þar getur næstum allt gerst og fólkið á götunni lendir óvart í sjónvarpinu.
Fjölskyldu- og skemmtiþáttur frá 2017-2018. Jón Jónsson fær til sín hressar fjölskyldur sem etja kappi í bráðfyndnum spurningaleikjum og þrautum. Dagskrárgerð: Rúnar Freyr Gíslason. Upptökustjórn: Vilhjálmur Siggeirsson.
Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Sænskir þættir sem fjalla um ævintýri sem eiga sér stað í sumarbúðum í Svíþjóð. Þar eru foringjarnir ekki alveg eins og fólk er flest og forvitin börn lenda í fjörugum aðstæðum, sem innihalda meðal annars boga, brjálaða geitunga og bjarnargildrur!
Samansafn atriða þar sem krakkar sýna sirkuslistir.
Flik-flak sirkusinn 1. Börn í danska sirkusinum Flik-flak sýna töfrabrögð. Flik-flak sirkusinn kom til Íslands sumarið 2002.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Davíð Tómas Tómasson, Hörður Unnsteinsson, Margrét Erla Maack og Una Sighvatsdóttir.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Rómantísk gamanmynd frá 2018, byggð á samnefndri metsölubók eftir Nick Hornby. Annie er föst í dauflegu sambandi með Duncan sem hefur mestan áhuga á að leita uppi löngu gleymdan rokkara að nafni Tucker Crowe. Sambandið verður skyndilega áhugavert þegar Annie hittir rokkhundinn Crowe fyrir tilviljun og neistinn blossar upp á milli þeirra. Leikstjóri: Jesse Peretz. Aðalhlutverk: Rose Byrne, Ethan Hawke og Chris O' Dowd.
Bresk sakamálamynd byggð á sögu eftir Caroline Graham þar sem Barnaby lögreglufulltrúi glímir við morðgátur í ensku þorpi. Meðal leikenda eru Neil Dudgeon og Nick Hendrix. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Íslandsmeistaramótið í sundi í 25m laug.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.