20:00
Landinn
4. desember 2022
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Landinn leitar að tófugrenjum í Mývatnssveit og fræðist um grenjavinnslu fyrr og nú. Við fræðumst um skipsstjórnarnám á Ísafirði, spilum á langspil í Hallormsstaðaskóla og heimsækjum skrúfuna á Eyrarbakka. Við heimsækjum líka alþjóðlegustu tannlæknastofu landsins þar sem starfsfólkið talar samtals 13 tungumál.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 29 mín.