23:00
Vitjanir
4. Vopn og verjur
Vitjanir

Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.

Kristín hefur áhyggjur af Hönnu, hjúkrunarfræðingnum á heilsugæslunni, þegar hún tekur eftir að Hanna er með marbletti sem hún reynir að fela. Eiginmaður Kristínar birtist óvænt og segir henni leyndarmál sem neyðir hana til að horfast í augu við óþæginlegan sannleika.

Var aðgengilegt til 12. maí 2023.
Lengd: 50 mín.
12
Ekki við hæfi yngri en 12 ára.
e
Endursýnt.
Dagskrárliður er textaður.
,