13:10
Kastljós
Samgöngumál, Já- eða nei, Reykjavík, Úkraínu spáð sigri í Eurovision
Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Samgöngur eru eitt mikilvægasta mál sveitarstjórnarkosninga að mati kjósenda en misjafnt er eftir því hvar fólk býr hvort áherslan er á almenningssamgöngur, viðhald gatna eða þróun samgöngukerfisins. Samgönguverkfræðingur segir Borgarlínuna mikilvægasta þáttinn í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Kastljós hjólaði í samgöngumálin í aðdraganda sveitarstjórnakosninga.

Jakob Birgisson og Vigdís Hafliðadóttir ljúka hringferð sinni um landið þar sem þau krefja frambjóðendur um skýr svör fyrir kosningar. Nú er röðin komin að Reykjavík.

Systurnar Sigga, Beta og Elín gáfu veðbönkum langt nef þegar þær komust áfram í lokakeppni Eurovision á laugardagskvöld. Þar deila þær sviðinu meðan annars með Úkraínu, sem komst líka áfram og er spáð sigri í keppninni. Við ræðum við úkraínsku keppendurna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliður er textaður.
,