Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Leikritið Fullorðin sem sýnt er í Hofi er söng- og gamanleikrit sem fjallar um skrefin inn í fullorðinsárin.
Fram koma: Vilhjálmur B. Bragason, Birna Pétursdóttir, Marta Nordal og Árni Beinteinn
Brot úr tónlistarþáttunum Tónatal í umsjón Matthíasar Más Magnússonar.
Jónas Sig flytur lagið Hafið er svart.
Bein útsending frá upplýsingafundi Almannavarna vegna COVID-19.
Þáttaröð þar sem heimur íslenskrar sögu og sagna er kannaður með því að skoða muni sem tengjast sérstökum atburðum í sögu þjóðarinnar. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason. Framleiðsla: Republik.
Í Hafnarfirði leynist fagurlega ofin karfa í einkaeigu. Hún er talin hafa verið gerð af einum frægasta útilegumanni og konu á Íslandi. Sigurður og Viktoría fara á stúfana, rekja sögu körfunar og um leið skoða líf þeirra Fjalla-Eyvinds og Höllu sem hefur orðið mörgum innblástur og skrifaðar hafa verið bækur, samin leikrit og gerðar kvikmyndir um ævi þeirra og örlög.
Í tveimur þáttum fetar fornleifafræðingurinn Jonathan Lindström í fótspor frumbyggja Svíþjóðar og veltir vöngum yfir breyttum aðstæðum lands og lýðs.
Í tveimur þáttum fetar fornleifafræðingurinn Jonathan Lindström í fótspor frumbyggja Svíþjóðar og veltir vöngum yfir breyttum aðstæðum lands og lýðs.
FYRSTA ÞÁTTARÖÐ. Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur á hundrað ára afmæli fullveldisins. Meðal þess sem þau skoða eru dellurnar sem þjóðin hefur gengið með í gegnum tíðina, nekt á Íslandi, og svo verða séríslensku sunnudagarnir sérstaklega kannaðirr. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Bergsson og Blöndal fjalla um sunnudagana séríslensku og þá siði og venjur sem íslensk þjóð hóf að þróa með sér um miðja síðustu öld. Þrjúbíó, hasarblöð og leikaramyndir koma við sögu, auk Hússins á sléttunni, sunnudagaskólans, ísbíltúra og heimsókna til ömmu og afa. Stóra spurningin í þættinum er ein af grunnspurningum íslensku þjóðarsálarinnar: hrygg eða læri?
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Brynja Benediktsdóttir var leikari og leikstjóri við Þjóðleikhúsið um þriggja áratuga skeið. Hún var líka leikskáld og samdi m.a. leikverkið Inúk ásamt leikhópi, svo og Ferðir Guðríðar en bæði þessi verk hafa verið sýnd víða um heim við góðan orðstír. Síðasta áratuginn rak Brynja eigið leikhús, Skemmtihúsið við Laufásveg. Efnið er úr safni Sjónvarpsins. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Miðaldafréttir eru fyndnir og fræðandi þættir sem KrakkaRÚV gerði í samstarfi við Árnastofnun. Í tilefni þess að árið 2021 eru 50 ár liðin frá heimkomu handritanna frægu ætla þeir Jakob Birgisson og Snorri Másson að segja okkur hvað er svona merkilegt við þessi handrit og hvernig lífið var á Íslandi á öldum áður.
Snorri og Jakob segja okkur hvað er svona merkilegt við Flateyjarbók. Bækur á miðöldum voru svolítið öðruvísi en bækurnar sem við þekkjum í dag, blöðin voru úr skinni og blekið úr jurtum eða kannski blóði.
Krakkafréttir dagsins: 1. Táknmál heimsins eru fjölbreytt 1. Fengu viðurkenningar á 112 deginum 3. Hundi bjargað úr kaldri vök
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir
Táknmálstúlkun: Auður Sigurðardóttir
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Það er heldur kuldalegt um að lítast í A-sal Hafnarhússin þar sem löndunarmenn og fiskikassar hafar lagt undir sig rýmið í nýju verki eftir Huldu Rós Guðnadóttur.
Tónlistarmaðurinn Jóel Pálsson er svo meðmælandi vikunnar.
Fram koma: Hulda Rós Guðnadóttir og Jóel Pálsson
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir