• 00:01:54Skiptimarkaður fyrir eldhúsáhöld
  • 00:21:32Þjóðlegur kynusli
  • 00:33:24Torfi

Lestin

Torfi, þjóðlegur kynusli, salatmeistari í Gerðubergi

Á jarðhæð Borgarbókasafnsins í Gerðubergi standa nokkur glær borð, og á þau hefur verið raðað fjöldanum öllum af eldhúsáhöldum og borðbúnaði. Þessa dagana stendur nefnilega yfir skiptimarkaður, sem er sérstaklega tileinkaður öllu því sem viðkemur eldhúsinu. Bjarni Daníel kynnti sér málið, og græddi nýjan bolla í leiðinni.

Guðrún Úlfarsdóttir, pistlahöfundur, sendir okkur hugleiðingu um kynusla í klæðaburði goða og garpa í gegnum tíðina, og framtíð kynhlutlauss þjóðbúnings.

Í næstu viku kemur út plata frá unga tónlistarmanninum Torfa, í kvöld spilar hann á Upprásinni í Hörpu, og í dag var hann í danstímum í allan dag. Það er nóg gera. En það kveður við ferskan tón í textum Torfa, þetta eru hinsegin ástarljóð, samin fyrir hinsegin klúbba sem fyrirfinnast varla á Íslandi.

Mac DeMarco - Cooking Up Something Good

Stirnir - Planta

María Baldursdóttir - Eldhúsverkin

Fredy Clue - Kärleksvisa

Kendrick Lamar - Real

David Bowie - Changes

Torfi - Mánaðamót

Torfi - Eiturlyf

Torfi - Ofurhægt

Torfi - Örmagna

Torfi - Hrifnastur

Frumflutt

16. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,