Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild. Plata vikunnar er The Composer of Desafinado Plays með Antonio Carlos Jobim.
Hlið A:
1. The Girl From Ipanema
2. O Morro (Amor Em Paz)
3. Agua De Beber
4. Dreamer (Vivo Sonhando)
5. Favela (O Morro Não Tem Vez)
6. Insensatez
Hlið B:
1. Corcovado
2. One Note Samba
3. Meditation
4. Jazz Samba (Só Danço Samba)
5. Chega De Saudade
6. Desafinado
Umsjón: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Í þættinum er fjallað um brennuna á Bergþórshvoli, hið dramatíska hámark þeirra atburða sem frá segir í Brennu Njáls sögu. M.a. er vikið að þeirri spurningu, hvort frásögnin af brennunni sé heiðin eða kristin? Hvort lýsingin á aðförum brennumanna og fórnarlambanna beri keim af lýsingum á karnivali miðalda o.fl.
Einnig eru lesin í þættinum ljóð nokkurra skálda sem hafa sótt sér yrkisefni í brennuna.
Einar Ólafur sveinsson les kafla úr Brennu Njáls sögu.
Lesari með umsjónarmanni er: G. Svala Arnardóttir
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason.
(Áður á dagskrá 2001)
Veðurstofa Íslands.
Í þáttunum rannsökum við reiðina, hvernig hún birtist og hvernig eigi að túlka hana. Er reiðin alltaf slæm, getur hún gert gott og verður pláss fyrir reiði í framtíðarsamfélaginu?
Umsjón: Rósa María Hjörvar.
Í þessum þætti ræðum við um framtíð reiðinnar og birtingarmyndir hennar í sögum af framtíðinni.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Þátturinn er í umsjón Höskuldar Kára Schram og er á dagskrá á laugardögum kl. 11-12.
Gestir Vikulokanna eru Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir þingmaður Framsóknarflokks og Jón Kaldal talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins.
Þau ræddu kappræður forsetaframbjóðenda, lagareldismálið, húsnæðismál, stýrivexti og Eurovision.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Sendinefnd frá Hamassamtökunum er komin til Kaíró til að ræða um vopnahlé á Gaza. Egypskur fjölmiðill segir töluvert hafa þokast áleiðis í viðræðunum.
Stjórnmálafræðingur sér ekki fyrir stórtíðindi í skoðanakönnunum eftir kappræður forsetaframbjóðenda í sjónvarpssal í gærkvöldi. Litlar líkur séu á því að nýr frambjóðandi blandi sér í toppslaginn. Landskjörstjórn hafa borist nokkrar tilkynningar frá fólki sem kannast ekki við að hafa skrifað sig á meðmælalista frambjóðenda.
Bæjarfulltrúi í Grindavík segir algjörlega óviðunandi að Grindvíkingar séu enn í bráðavanda í leit að húsnæði. Um sjötíu manns eru í þeirri stöðu.
Í dag verður kosið til sveitarstjórnar í nýju sameinuðu sveitarfélagi á vestasta hluta Vestfjarða, eftir sameining Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Mikil endurnýjun verður í sveitarstjórn og kosið er til heimastjórna á fjórum svæðum í fyrsta sinn.
Glódís Perla Viggósdóttir er þýskur meistari með Bayern Munchen annað árið í röð. Liðið tryggði sér titilinn í dag þegar enn eru tvær umferðir eftir í deildinni.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Sjónvarpsþættirnir Baby Reindeer njóta mikilla vinsælda hér á landi og eru þeir vinsælustu á streymisveitunni Netflix um þessar mundir. Þættirnir segja sanna sögu ungs manns sem lendir í eltihrelli. Ólöf Ragnarsdóttir skoðaði fyrirbærið og þættina vinsælu.
Skæð fuglaflensa, eða H5N1 eins og núverandi afbrigði er kallað, er vaxandi áhyggjuefni meðal heilbrigðisyfirvalda víða um heim. Vísbending er um að vírusinn sem veldur flensunni hafi mögulega stökkbreyst og geti smitast milli spendýra. Það eru fjölmörg dæmi um að fólk hafi smitast af fuglaflensu og dánartíðnin er uggvænleg; af 889 tilfellum um smit í fólki síðustu 12 mánuði dóu fjögur hundruð sextíu og þrír, eða rúmlega helmingur, sagði yfirmaður hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um miðjan þennan mánuð. Björn Malmquist skoðaði málið.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gísli Einarsson sjónvarpsmaður með meiru. Við þekkjum hann auðvitað úr Landanum og fjölda annarra sjónvarspþátta, en í dag stökk hann inn með skömmum fyrirvara til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gísli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Tálknfirðingur BA – e. Ólaf Svein Jóhannesson
Einmanna – e. Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur
Þjóðsögur Jóns Árnasonar - ritröðin öll
Kóngulóin e. Lars Kepler
Hundrað kvæði e. Þórarinn Eldjárn
Snorri Sturluson og Jón Trausti.
Tónlistarstraumar frá ýmsum löndum, úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Umsjón: Árni Matthíasson
Guðmundur Þór Friðleifsson, sem notar listamannsnafnið ThorF, lagði rafmagnsgítarinn og síða hárið á hilluna þegar hann heyrði Music for the Jilted Generation með Prodigy á sínum tíma. Hann tók þátt í raftónlistarbyltingu tíunda áratugar síðustu aldar, en hefur búið í Bandaríkjunum síðustu ár. Hann heldur þó áfram að semja og taka upp raftónlist, þó hann sé að fjarlægjast tölvuna.
Lagalisti:
Liqsquid - MetAmbientalic
Ár / Year - Vor / Spring
Spark - Wolfhunter
Wander - 3rDx7
Liqsquid - Ambient Synth Collection A-2
Mamma/Pabbi - Beautiful Show Must Go On
Mamma/Pabbi - Náttfall
YT Stream A - YT Stream A
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga.
Þáttur um íslenskt myndband sem varð að innblæstri að lagi hljómsveitarinnar Slagsmál. Myndbandið heitir Fokk sími og dreifðist það um á snjallsímaforritinu TikTok. Í þættinum verður farið yfir þróun svokallaðra viral myndbanda og hvernig þau geta mótað bæði mál og tónlist.
Viðmælendur: Þórbergur Bollason og Kormákur Bergsson.
Umsjón: Matthildur G. Hafliðadóttir.
Fyrir 20 árum lét Atli Fannar Bjarkason sig dreyma um að starfa á fjölmiðlum. Hann flutti til Reykjavíkur með báðar hendur tómar og fékk tækifæri til að skrifa í dagblöð, ritstýra tímaritinu Monitor og koma fram í útvarpi og sjónvarpi. Hann flutti líka fréttainnslög í Vikunni með Gísla Marteini og stofnaði sinn eigin fjölmiðil, Nútímann sem hann tengist ekkert í dag.
Draumurinn rættist sem sagt en þegar hann horfir til baka sér hann að á þessum tíma hafi hann oft verið með bölvuð leiðindi við fólk sem átti það ekkert endilega skilið. Í þessum þáttum hittir hann þetta fólk og leggur spilin á borðið.
Umsjón: Atli Fannar Bjarkason.
Útvarpsfréttir.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við hugum að stolnum bókum, glötuðum, gleymdum og illfáanlegum í þætti dagsins. Ritmálið hefur verið menningarmiðja öldum saman, en allt er þetta viðkvæmt og það þarf að treysta á að handrit og bækur og það sem í þeim stendur geymist. Bækur brenna við 451 fahrenheit, svo mikið er víst. Svo eru það bókaþjófarnir. Við veltum fyrir okkur tilgangi þess að stela bók, hvort sem það er vegna gróða eða söfnunaráráttu.
Við rifjum líka upp innslag um illfáanlega bókaröð. Í ár eru 70 ár frá fyrstu útgáfu háfantasíubóka J.R.R Tolkiens, The Lord of the Rings, Hringadróttinssögu en fyrsta bindið Fellowship of the ring, kom út sumarið 1954. Íslensku þýðingarnar eftir Þorstein Thorarensen komu út á 10. áratugnum en hafa verið nær ófáanlegar síðan, hvers vegna?
Viðmælendur: Dagný Hulda Erlendsdóttir, Guðvarður Már Gunnlaugsson, Friðgeir Einarsson, Björn Thorarenssen, Gunnar Theodór Eggertsson.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í þessum þáttum er fjallað um bandarískar sönggyðjur allt frá því að Bessie Smith og hinar kröftugu blússöngkonur hófu að hljóðrita með djasshljómsveitum til helstu djasskvenna okkar tíma einsog Dee Dee Bridgewater. Billie Holliday, Ella Fitzgerald og Sarah Vaughan eru drottningar djassins, en fjöldi annarra söngkvenna gerðu garðinn frægan þótt sjaldnar heyrist þær á öldum ljósvakans, nema þá gospelsöngkonan Mahalia Jackson og söngkonur sem voru á mörkum djass og popps einsog Nina Simone og Diana Washington. Samt sem áður eru þær margar sem ekki eiga skilið að falla í gleymsku og verða kynntar í þessum þáttum jafnt sem hinar frægari.
Umsjón með þáttunum hefur Vernharður Linnet.
(Áður á dagskrá 2008)
Það eru engar hljóðritanir til með blússöngkonum í stíl götusöngvara einsog Blind Lemmon Jefferson eða alþýðusöngvara á borð við Leadbelly. Fyrsta þekkta blússöngkonan, en þær sungu jafnan með djasssveitum, var Ma Raney og skömmu síðar steig keisaraynja blússins fram í sviðsljósið: Bessie Smith.
Kvöldfréttir útvarps
Veðurstofa Íslands.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Swedish Swing kvartettinn leikur lögin Avalon, Moonglow, Flying Home, Stompin' AT The Savoy, Poor Butterfly, I Got Rhythm og More Than You Know. Kvintett Benny Golson leikur lögin Sweet Georgia Brown, Cherry, Tough Me Lightly, Killer Joe, Caribbean Drifting og Blues March. Jesper Thilo kvartettinn leikur lögin Stardust, Joy Spring, Wouldn't You, Save Your Love og God Bless The Child.
Gunnar Stefánsson fjallar um merkisfólk fyrri tíðar og leitar fanga í bókum og blaðagreinum.
(Áður á dagskrá 2007)
Í þessum fyrsta þætti les umsjónarmaður kafla úr bókinni: Dr. Grímur Thomsen: merkir menn sem ég hef þekkt, eftir Thoru Friðriksson.
Umsjónarmaður er Gunnar Stefánsson.
Fjallað er um Sturlungasögu og rætt við leika og lærða um söguna, sögusviðið og einstakar persónur frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
(Áður á dagksrá 1984-85)
Í þættinum er haldið áfram samtali Skjaldar Eiríkssonar og Ólafs Guðmundssonar um valdaáform Sturlu Sighvatssonar.
Kristbjörg Kjeld les nokkur brot úr Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar er snerta umræðuefnið.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan flettir í plötustafla áranna um og uppúr 1970, liggur á gulu og brúnu gólfteppi fyrir framan sjónvarp í palisanderkassa og horfir á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í svart-hvítu eða hlustar á Lög unga fólksins á þriðjudagskvöldum, með fingurna á rec og play á litla kasettutækinu. Brotherhood of man, Teach-in, Middle of the Road, ABBA flokkurinn, Pelican, Ábót og Paradís sjá um fjörið. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Þátturinn er í umsjón Höskuldar Kára Schram og er á dagskrá á laugardögum kl. 11-12.
Gestir Vikulokanna eru Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir þingmaður Framsóknarflokks og Jón Kaldal talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins.
Þau ræddu kappræður forsetaframbjóðenda, lagareldismálið, húsnæðismál, stýrivexti og Eurovision.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Tónlist af ýmsu tagi.
Kristján Freyr stekkur í skó Felix Bergssonar, rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar huggulega tóna sem hæfa laugardagsmorgnum. Hin bráðskemmtilega Fimma er á sínum stað þar sem góðir gestir segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra
Gestur Fimmunnar í Fram og til baka þennan morguninn var Adda Rúna Valdimarsdóttir skrifstofustjóri menningarborgar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Hún bauð upp á bráðskemmtilegt ferðalag milli fimm staða, borga sem annarra byggðalaga hér á landi, Adda Rúna ólst upp á Skaganum en fór svo sem unglingur að skoða heiminn og við heyrðum um veru hennar í Texas í Bandaríkjunum, Kaupmannahöfn og ferðir um háldni íslands.
Í seinni hluta þáttar hringdum við vestur á firði og tókum púlsinn á tónlistarmanninum Skúla Þórðarson sem kennir nú á gítar við Tónlistarskólann á Ísafirði. Skúli hefur ekki verið eins iðinn við kolann að viðra tónlistarsjálfiðvið, Skúla mennska, en sitthvað stendur til í sumar. Skúli var að undirbúa sig fyrir tónleika kvöldsins en hann kemur fram þessi dægrin með Kennarasambandinu, hljómsveit skipaða samkennurum Skúla við Tónlistarskólann.
Loks var nú tónlistin vitanlega í forgrunni og þar var farið fram og til baka.
Jónas Sig og lúðrasveit Þorlákshafnar - Hafið er svart.
The Kinks - Waterloo Sunset.
Dolly Parton - 9 to 5.
Abba - Eagle.
Kiriyama Family - About you.
Stuðmenn - Reykingar.
Stone Roses - Made of Stone.
Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót - Heilræðavísa.
Kim Larsen - Papirsklip.
Velevet Underground & Nico - femme fatale.
Blind Melon - No rain.
Beyonce - Hold Up.
Electric Light Orchestra - Living Thing.
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Sendinefnd frá Hamassamtökunum er komin til Kaíró til að ræða um vopnahlé á Gaza. Egypskur fjölmiðill segir töluvert hafa þokast áleiðis í viðræðunum.
Stjórnmálafræðingur sér ekki fyrir stórtíðindi í skoðanakönnunum eftir kappræður forsetaframbjóðenda í sjónvarpssal í gærkvöldi. Litlar líkur séu á því að nýr frambjóðandi blandi sér í toppslaginn. Landskjörstjórn hafa borist nokkrar tilkynningar frá fólki sem kannast ekki við að hafa skrifað sig á meðmælalista frambjóðenda.
Bæjarfulltrúi í Grindavík segir algjörlega óviðunandi að Grindvíkingar séu enn í bráðavanda í leit að húsnæði. Um sjötíu manns eru í þeirri stöðu.
Í dag verður kosið til sveitarstjórnar í nýju sameinuðu sveitarfélagi á vestasta hluta Vestfjarða, eftir sameining Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Mikil endurnýjun verður í sveitarstjórn og kosið er til heimastjórna á fjórum svæðum í fyrsta sinn.
Glódís Perla Viggósdóttir er þýskur meistari með Bayern Munchen annað árið í röð. Liðið tryggði sér titilinn í dag þegar enn eru tvær umferðir eftir í deildinni.
Atli Már Steinarsson rabbar við hlustendur og leikur létta tónlist.
Við erum út um allt í dag eins og venjulega, en bara smellir og "hittarar" eins og áður. Við fögnum alls kyns útgáfum, Elvis Presley, Prince, Aretha Franklin og fleiri gáfu út lög eða plötur í vikunni sem leið, þó það séu jafnvel 40-50 ár síðan. Svo eru afmæli James Brown, Lance Bass og Lou Gramm til að nefna nokkra merkisdaga sem við höldum uppá.
Lagalisti:
START - Seinna Meir.
ARETHA FRANKLIN - Respect.
STEVIE WONDER - Superstition.
Blondie - Heart Of Glass.
FLEETWOOD MAC - Go Your Own Way.
MANNAKORN - Þorparinn.
NEW ORDER - Blue Monday 88.
MADONNA - Like A Prayer.
DEPECHE MODE - Just can't get enough.
NSYNC - Pop.
LILY ALLEN - Ldn.
Clash Hljómsveit - London calling.
DAVID BOWIE - Starman.
Coldplay - Clocks.
Adele - Rumour Has It.
THE POLICE - Roxanne.
TALKING HEADS - Psycho Killer.
ELTON JOHN - Don't Go Breaking My Heart.
JEFF WHO? - Barfly.
FRANZ FERDINAND - Take Me Out.
THE STROKES - Reptilia.
Trammps - Disco inferno.
Chic - Good times.
CE CE PENISTON - Finally.
Bee Gees - Night Fever.
OLIVIA NEWTON-JOHN & THE ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA - Xanadu.
STUÐMENN - Betri Tíð.
Turner, Tina - Proud Mary.
GUNS N' ROSES - Sweet Child O' Mine.
PRINCE - Kiss.
SLY AND THE FAMILY STONE - Everyday People.
SCISSOR SISTERS - Take your mama.
KK - Lucky One.
JAMES BROWN - Get Up Offa That Thing.
AMY WINEHOUSE - Back To Black.
EMINEM - Lose yourself.
Timberlake, Justin, 50 Cent - Ayo technology (radio edit).
NELLY FURTADO - Turn Off The Light.
Aguilera, Christina - Genie in a bottle.
Blink - All the small things.
JIMMY EAT WORLD - The middle.
Allman Brothers Band - Midnight Rider.
ROXY MUSIC - Let's stick together.
Presley, Elvis - Jailhouse rock.
FOREIGNER - I Want To Know What Love Is.
Fleetwood Mac - Dreams
Útvarpsfréttir.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Hamingjan er hjá Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar, Bjartmar og Bergrisarnir fara í gallann með Allan en Moses Hightower býr til börn í bílalest út úr bænum. Ellen Kristjáns og Pétur Ben liggja dreymandi á ströndinni, Hera Björk talar tungum, Biggi Bix er eldfimur, Rúnar Þóris stendur upp og Björgvin Halldórs heldur áfram að syngja dúetta. Apparat Organ Quartet semur lag um flugvélafarangur, Sóley Stefáns finnur blá lauf á leikhúseyju og Klassart syngur um gamla grafreitinn. Of Monsters & Men tekur Músíktilraunir með trompi, Agent Fresco sendir frá sér langþráða breiðskífu og Seabear kveikir eld á köldu sumri.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í 41. þættinum, í fyrsta hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2010, eru Jónas Sigurðsson, Bjartmar Guðlaugsson, Birkir Rafn Gíslason, Ellen Kristjánsdóttir, Pétur Hallgrímsson, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Björgvin Halldórsson, Rúnar Þórisson, Steingrímur Teague, Andri Ólafsson, Jón Gnarr, Sindri Már Sigfússon, Sóley Stefánsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Hörður Bragason, Úlfur Eldjárn, Sighvatur Ómar Kristinsson, Arnar Geir Ómarsson, Þórarinn Guðnason, Arnór Dan Arnarson og Fríða Dís Guðmundsdóttir.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
Jónas Sigurðsson - Diskótek djöfulsins
Jónas Sigurðsson - Hamingjan er hér
Jónas Sigurðsson - Skuldaólin
Jónas Sigurðsson - Hleypið út úr þessu partýi
Jónas Sigurðsson - Rangur maður (Live á Bræðslunni)
Ummi - Ef þú þekkir mig ekki
Bjartmar & Bergrisarnir - Í gallann Allann
Bjartmar & Bergrisarnir - Konan á allt
Bjartmar & Bergrisarnir - Negril
Ellen Kristjánsdóttir - Dreams
Ellen Kristjánsdóttir - The Beach
Of Monsters & Men - Phantom (Live Músíktilraunir)
Of Monsters & Men - Love Love Love (Live Músíktilraunir)
Of Monsters & Men - Little Talks (iTunes 2010 útgáfan)
Of Monsters & Men - Little Talks (Live KEXP)
Björgvin Halldórsson & Karl Henry - This is Goodbye
Björgvin Halldórsson & Mugison - Minning
Biggi Bix - Oh My, oh My
Biggi Bix - Situation
Rúnar Þórisson - Stand up
Rúnar Þórisson - When I was
Moses Hightower - Búum til Börn
Moses Hightower - Vandratað
Moses Hightower - Alltígóðulagi
Moses Hightower - Moses Hightower
Moses Hightower - Mister Know It All (Stúdíó 12)
Moses Hightower - Bílalest úr bænum
Besti flokkurinn - Við erum best!
Seabear - I’ll Build You A Fire
Seabear - Cold Summer
Sóley - Theater Island
Sóley - Blue Leaves
Jógvan Hansen - One More Day
Hera Björk - Je ne sais quoi
Apparat Organ Quartet - Babbage
Apparat Organ Quartet - Cargo Frakt
Benni Hemmi Hemm - Við við til til
Útidúr - Fisherman Friend
Amiina - What We Are Waiting For
Benny Crespo’s Gang - Night Time
Agent Fresco - Silhouette Palette
Agent Fresco - Eyes Of A Cloud Catcher
Agent Fresco - A Long Time Listening
Klassart - Þangað til það tekst
Klassart - Gamli grafreiturinn
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Fréttastofa RÚV.
Lovísa Rut Kristjánsdóttir tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Lovísu er kynfræðingurinn Indíana Rós Ægisdóttir
Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Útvarpsfréttir.