Heimskviður

182 - Baby Reindeer og skæð fuglaflensa

Sjónvarpsþættirnir Baby Reindeer njóta mikilla vinsælda hér á landi og eru þeir vinsælustu á streymisveitunni Netflix um þessar mundir. Þættirnir segja sanna sögu ungs manns sem lendir í eltihrelli. Ólöf Ragnarsdóttir skoðaði fyrirbærið og þættina vinsælu.

Skæð fuglaflensa, eða H5N1 eins og núverandi afbrigði er kallað, er vaxandi áhyggjuefni meðal heilbrigðisyfirvalda víða um heim. Vísbending er um vírusinn sem veldur flensunni hafi mögulega stökkbreyst og geti smitast milli spendýra. Það eru fjölmörg dæmi um fólk hafi smitast af fuglaflensu og dánartíðnin er uggvænleg; af 889 tilfellum um smit í fólki síðustu 12 mánuði dóu fjögur hundruð sextíu og þrír, eða rúmlega helmingur, sagði yfirmaður hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um miðjan þennan mánuð. Björn Malmquist skoðaði málið.

Frumflutt

4. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,