Fram og til baka

Adda Rúna bauð upp á fimm mótandi borgir og byggðalög

Gestur Fimmunnar í Fram og til baka þennan morguninn var Adda Rúna Valdimarsdóttir skrifstofustjóri menningarborgar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Hún bauð upp á bráðskemmtilegt ferðalag milli fimm staða, borga sem annarra byggðalaga hér á landi, Adda Rúna ólst upp á Skaganum en fór svo sem unglingur skoða heiminn og við heyrðum um veru hennar í Texas í Bandaríkjunum, Kaupmannahöfn og ferðir um háldni íslands.

Í seinni hluta þáttar hringdum við vestur á firði og tókum púlsinn á tónlistarmanninum Skúla Þórðarson sem kennir á gítar við Tónlistarskólann á Ísafirði. Skúli hefur ekki verið eins iðinn við kolann viðra tónlistarsjálfiðvið, Skúla mennska, en sitthvað stendur til í sumar. Skúli var undirbúa sig fyrir tónleika kvöldsins en hann kemur fram þessi dægrin með Kennarasambandinu, hljómsveit skipaða samkennurum Skúla við Tónlistarskólann.

Loks var tónlistin vitanlega í forgrunni og þar var farið fram og til baka.

Jónas Sig og lúðrasveit Þorlákshafnar - Hafið er svart.

The Kinks - Waterloo Sunset.

Dolly Parton - 9 to 5.

Abba - Eagle.

Kiriyama Family - About you.

Stuðmenn - Reykingar.

Stone Roses - Made of Stone.

Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót - Heilræðavísa.

Kim Larsen - Papirsklip.

Velevet Underground & Nico - femme fatale.

Blind Melon - No rain.

Beyonce - Hold Up.

Electric Light Orchestra - Living Thing.

Frumflutt

4. maí 2024

Aðgengilegt til

4. maí 2025
Fram og til baka

Fram og til baka

Kristján Freyr stekkur í skó Felix Bergssonar, rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar huggulega tóna sem hæfa laugardagsmorgnum. Hin bráðskemmtilega Fimma er á sínum stað þar sem góðir gestir segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra

Þættir

,