Veislan

Norðurland - Vellir í Svarfaðardal

Gunnar Karl tekur á móti Dóra á flugvellinum á Akureyri og þeir félagar fara á heimaslóðir Gunnars á Norðurlandi. Þeir fara meðal annars á Öngulstaði, Hauganes, Siglufjörð og Velli í Svarfaðardal og gæða sér á kræsingum hvar sem þeir koma. Á Völlum ákveða þeir blása til veislu fyrir nágrannana í gamla fjárhúsinu.

Frumsýnt

24. apríl 2022

Aðgengilegt til

18. júlí 2024
Veislan

Veislan

Nýir íslenskir lífstíls- og matarþættir þar sem þeir Dóri DNA og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið, kynnast áhugaverðu fólki og fræðast um menningu, listir, mat og nýsköpun í nýtingu auðlinda. Á leið sinni á hvern áfangastað safna þeir hráefnum sem Gunnar Karl nýtir til matreiðslu í lok hvers þáttar með dyggri aðstoð heimamanna. Leikstjórn: Hannes Þór Arason. Framleiðsla: Gamli Blakkur, Fígúra og Lilja Jóns.

Þættir

,