Í fyrsta þættinum af Stundinni okkar á Rás 1 ætla krakkar í 4. H í Háaleitisskóla Hvassaleiti að bregða á leik.
Þau bjuggu til handritið, völdu tónlistina og afraksturinn má heyra í þessum hressa og skemmtilega þætti.
Við fræðumst um risaeðlur, förum í æsispennandi spurningakeppni, heyrum bekjarsönginn þeirra og heyrum hvaða bækur, tónlist og tölvuleikir eru mest spennandi í dag.