
Þetta nútímalíf
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.
Hvernig er að vinna í gigghagkerfinu, harkhagkerfinu, nú eða úllen dúllen doff hagkerfinu? Hagkerfi þar sem ófyrirsjáanlegur algóriþmi ræður því hver fær verkefni og hver ekki? Getur algóriþmi verið sanngjarn? Hvað getur talist vinna og hvað er bara hangs?
Í þættinum kynnumst við veruleika Wolt-sendla á Íslandi, sérstaklega honum Mani sem rúntar með okkur um götur Reykjavíkur, segir okkur frá starfi sínu fyrir Wolt, áhyggjum og framtíðardraumum, já og því hvers vegna sendlarnir hanga svona oft í Fellsmúlanum.
Við ræðum við forsvarsmann Wolt á Íslandi og í Noregi, nýkjörinn talsmann Wolt-sendla á Íslandi, gervigreindarsérfræðing og sendla sem fylktu liði á skrifstofur Wolt í Ármúla þegar verktakar hjá Wolt fengu langþráðan fund með yfirmönnum fyrirtækisins í lok september.
Viðmælendur í þættinum:
Christian Kamphaug
Kristinn R. Þórisson
Gersón
Gheorghe Mihai Cacaliceanu
Mani Shahidi

Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.