Synir meistara Bachs
Annar þáttur - Carl Philipp Emanuel
Þegar minnst var á Bach í þýskumælandi löndum á seinni hluta átjándu aldar og í byrjun þeirrar nítjándu var oftar en ekki átt við Carl Philipp Emanuel. Næst elsti sonur Johanns Sebastians naut tónlistarkennslu föður síns frá unga aldri og stundaði síðar laganám í háskólunum í Leipzig og Frankfurt. Hann var semballeikari við hirð Friðriks mikla Prússakonungs í Berlín um þriggja áratuga skeið, en frá árinu 1768 og til dauðadags tuttugu árum síðar gegndi hann stöðu tónlistarstjóra við meginkirkjur Hamborgar (og er fyrir vikið oft nefndur Hamborgar-Bach). Carl Philipp Emanuel var í miklum metum sem tónskáld, kennari og hljóðfæraleikari. Fáir þóttu leika betur eða af meiri innlifun á sembal og klavíkord um hans daga og kennslubók hans í hljómborðsleik, Ein Versuch über die wahre Art das Clavier zu spielen, er ein merkasta heimild sem til er um tónlistarflutningsvenjur átjándu aldar. Meistarar Vínarklassíkurinnar, Haydn, Mozart og Beethoven, mátu Carl Philipp Emanuel mikils og lærðu sitthvað af honum. Tónverk hans, og þá ekki síst hin afar persónulegu hljómborðsverk, eru talin merkasta dæmið um hinn svokallaða Empfindsamer Stil, tilfinningasemistefnuna, sem var vinsæl í bókmenntum og tónlist í Þýskalandi um miðja átjándu öld og miðaði að því að kalla fram sterk og milliliðalaus tilfinningaviðbrögð. Í áðurnefndri kennslubók sagði Carl Philipp Emanuel að megintilgangur tónlistarinnar væri að snerta hjartað og leika á tilfinningastrengi hlustandans.
Fuge über B.A.C.H. -Carl Philipp Emanuel Bach - Marie-Claire Alain orgel
Siciliana úr sónötu í Es dúr ,BWV 1031 -Carl Philipp Emanuel Bach -Marion Verbrüggen blokkflauta, Mitzi Meyerson semball
Pólónesa i g-moll - Úr nótnabök Önnu Magdalenu Bach (1725) -Michael Behringer semball
Allegro úr flautusónötui e-moll, W. 124 -Carl Philipp Emanuel Bach -Nancy Hadden flauta, Lucy Carolan semball
Allegro assai úr Württenberg sónötu nr 1 í a moll, W.49 -Carl Philipp Emanuel Bach -Shin'ichiro Nakano semball
Allegro assai úr sinfóníu í e moll, W. 178-Carl Philipp Emanuel Bach -Les Amis de Philippe; stjórnandi: Ludger Rémy
Der Morgen -Carl Philipp Emanuel Bach -Klaus Mertens barlton, Ludger Rémy fortepíanó
Andantino úr flautusónötu C-dúr, W. 87 -Carl Philipp Emanuel Bach -Nancy Hadden flauta, Lucy Carolan fortepíanó
,,Du bist der Ursprung" úr Die lsraeliten in der Wüste, W. 238 -Carl Philipp Emanuel Bach -Corona & Cappella Coloniensis; stjórnandi: William Christie
Allegro di molto úr sinófníu í D dúr w.183/1-Carl Philipp Emanuel Bach -Orchestra of the Age of Enlightenment, stjórnandi:
Gustav Leonhardt
Die neue Litanei, W.2O4/2 -Carl Philipp Emanuel Bach -Gesualdo Consort Amsterdam; stjórnandi: Harry van der Kamp
,,Vater, deiner schwachen Kinder" úr Die Auferetehung und Himmelfahrt Jesu, w.240-Carl Philipp Emanuel Bach -Hillevi Martinpelto sópran, Peter Harvey bassi, Orchestra of the fue of Enlightenment; stjórnandi: Philippe Herreweghe
Allegro úr hljómborðskonserti í D dúr W.13-Carl Philipp Emanuel Bach -Miklós Spanyi fortepianó og Concert Armonico;
stjórnandi: Péter Szüts
Allegro-Adagio-Allegro úr hljómborðssónötu í g moll W.65/17 -Carl Philipp Emanuel Bach - Mikhail Pletnev píanó
Bußlied -Carl Philipp Emanuel Bach -Dorothy Mields sópran, Ludger Rémy fortepiano
