Sumartónleikar

Arnheiður Eiríksdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir í Sigurjónssafni

Hljóðritun frá ljóðatónleikum Arnheiðar Eiríksdóttur messósópransöngkonu og Helgu Bryndísar Magnúsdóttur píanóleikara sem fram fóru í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í ágúst sl.

Tónleikarnir báru yfirskriftina Franskar sumarnætur og á efnisskránni voru ljóðaflokkur Nuits d'été eftir Hector Berlioz, þekkt sönglög eftir Gabriel Fauré og aríur úr óperunum Romeó og Júlíu eftir Charles Gounod, Werther eftir Jules Massenet og Samson og Dalílu eftir Camille Saint-Saëns.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Birt

28. júní 2026

Aðgengilegt til

29. júlí 2026

Sumartónleikar

,