Skáld og skrælingjar

4. þáttur: Eyjaskeggjar koma til borgarinnar

Fyrstu Íslendingarnir sem skrifa ferðasögur eiga allir leið um Kaupmannahöfn. Hvernig varð þeim við koma frá þessari afskekktu eyju í aldagamla borg? Hvernig mótaði hún sjálfsmynd þeirra?

Rætt við Steinunni Ingu Óttarsdóttur og Gunnþórunni Guðmundsdóttur.

Frumflutt

25. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Skáld og skrælingjar

Skáld og skrælingjar

10 þátta röð fyrir Rás 1 í umsjón Þorgerðar E. Sigurðardóttur og Halldórs Guðmundssonar.

Ísland og Kaupmannahöfn í spegli bókmenntanna: Í þáttunum verða þessi aldalöngu tengsl skoðuð frá mörgum sjónarhornum. Kaupmannahöfn var í næstum 500 ár eins konar höfuðborg Íslands, aðsetur stjórnsýslunnar, æðsta dómstólsins og konungsins. Sumir Íslendingar hröktust þangað eða voru fluttir til borgarinnar nauðugir, aðrir leituðu þar frelsis og réttinda sem þeir nutu ekki heima. Hvernig kom borgin þeim fyrir sjónir, hvernig breytti hún viðhorfum þeirra eða umturnaði lífshlaupinu? Óvíða sést þetta betur en í bókum Íslendinganna sjálfra og hér verður leitað fanga í þeim og rætt við rithöfunda og ýmsa sérfræðinga, auk þess sem heyra áhugaverð brot úr safni RÚV í bland við ýmiss konar tónlist. Til verður mynd sem er stundum fögur, stundum óhugnanleg en alltaf forvitnileg.

Þættir

,