This Is It: Endalok og nýtt upphaf
Í þessum lokaþætti skoðum við þann Michael Jackson sem birtist okkur við æfingar vegna fyrirhugaðra tónleika í heimildamyndinni This Is It. Eftir andlát Michael Jackson í júní 2009…
Michael Jackson sendi frá sér sína síðustu stúdíóplötu árið 2001 og bar hún nafnið Invincible. En var hann ósigrandi? Í þessum þætti skoðum við feril Michael Jackson í kringum aldamótin er hann háði baráttur á ýmsum vígstöðum og fór meðal annars í sjálfskipaða útlegð til Arabalanda.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. júlí 2015.

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir