Samfélagið

Frostvandræði á Akureyri og hugmyndahraðhlaup fyrir háskólanema

Fimbulfrost setti svip sinn á áramótin á Akureyri, það lækkaði töluvert í hitaveitutönkunum og Norðurorka virkjaði neyðarstjórn. Ástandið er skárra núna þó frostið aftur herða tökin. Í fyrri hluta þáttarins ræðum við Baldur Viðar Jónsson, vélfræðing hjá Norðurorku - um snjóbræðslukerfi sem eiga ekkert í gaddinn, ofanjarðarlagnir frá áttunda áratugnum, nýjar og gamlar borholur - bara hitaveituinnviðina á Akureyri eins og þeir leggja sig.

Og í seinni hluta þáttarins fjöllum við um nýsköpun. Hugmyndahraðhlaup Gulleggsins verður haldið í fyrsta skipti núna um helgina. Þetta er viðburður þar sem háskólanemar prófa vera frumkvöðlar, mynda teymi og þróa hugmyndir til leysa vandamál. Við ræðum við Íseyju Dísu Hávarsdóttur og Jennu Björk Guðmundsdóttur, sem eru verkefnastjórar hjá Klak Icelandic Startups, og spjöllum um þennan viðburð og nýsköpunarumhverfið á Íslandi.

Frumflutt

3. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,