
Morgunkaffið
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Júlía Margrét og Jóhann Alfreð leystu Söndru og Gísla af þennan laugardagsmorguninn og það var kjördagsbragur á þættinum. Jóhann mælti sér mót við Brynhildi Bolladóttur, sem hefur starfað á kjörstað í Reykjavík í fjölmörgum kosningum og við fengum að forvitnast um hvernig starfið í kjördeildunum og við kosningar gengur fyrir sig.
Karen Björg Þorsteinsdóttir, handritshöfundur og Grenivíkurmær var aðalgestur þáttarins. Við ræddum tískustraumana og hefðir í kringum kjördag og verkefnin framundan. Í lok þáttar litu svo þau Birta Björnsdóttir og Oddur Þórðarson, fréttamenn við í stúdíó og sögðu okkur frá kosningavöku RÚV í kvöld.

Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.