
Með útúrdúrum til átjándu aldar
Pétur Gunnarsson tekur að sér leiðsögn til Íslands á átjándu öld. - Lesari með honum er Hjalti Rögnvaldsson.
Þættirnir eru frá 1996
Umsjónarmaður tekur að sér leiðsögn til Íslands á átjándu öld. - Lesari með umsjónarmanni er Hjalti Rögnvaldsson
Þetta er fimmti og næstsíðasti þátturinn og fjallar um leiðangur Stanleys á Íslandi sumarið 1789. Förinni er heitið til Heklu en ótal útúrdúrar og uppákomur tefja en á meðan hittum við Ísland á átjándu öld, m.a. er staldrað við í Reykjavík sem er nýfarin að standa í lappirnar, Dómkirkjan í smíðum og verið er að leggja Hafnarstræti en Austurvöllur er tjaldstæði Englendinganna. Við kynnumst nokkrum nafngreindum löndum, Gísla Thorlaciusi, hinum drykkfellda rektor Hólavallaskóla, Ólafi Stephensen, óðalsbónda og valdsmanni á átjándu öld, en aðallega ónafngreindum konum og körlum sem lifa á þessum dögum.

Pétur Gunnarsson tekur að sér leiðsögn til Íslands á átjándu öld. - Lesari með honum er Hjalti Rögnvaldsson.
Þættirnir eru frá 1996