1. Kynning á Mannlegum samskiptum
Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi mun vera með okkur í Mannlega þættinum á fimmtudögum í vetur með það sem við köllum Mannleg samskipti. Við kynntumst Valdimari í dag og hvar hans reynsla…
Mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni voru í Mannlega þættinum í dag. Í þetta sinn tók hann upp þráðinn frá því síðast og hélt áfram að tala um það sem fólk sér eftir því að hafa gert, eða ekki gert, þegar það lítur um öxl þegar komið er á lokastöð ævinnar. Það er áhugavert að heyra hverju fólk sér eftir því það getur gefið okkur vísbendingar um það sem skiptir mestu máli í lífinu.
Fyrst flutt í Mannlega þættinum 8.jan. '26

Valdimar Þór Svavarsson ræðir um mannleg samskipti alla fimmtudaga í Mannlega þættinum