Litli rauði trékassinn: Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi og vinir

Nína Tryggvadóttir og Erlendur

Nína Tryggvadóttir málari kemur í Unuhús árið 1939. Nína er nýkomin utan og staldrar stutt við í Unuhúsi, flyst til New York 1943. Hún verður náin vinkona Erlendar og annarra listamanna í Unuhúsi og líta á portrettverk þeirra Nínu og Louisu Matthíasdóttur sem gestabók Unuhúss þessa tíma. Róttækir málarar og skáld sem sækja Unuhús eiga undir högg sækja fyrir hugmyndafræði sína. Nína og Erlendur verða perluvinir og sjá ástina skína úr bréfum þeirra á milli eftir Nína flyst út. Listin er öllu fremri.

Viðmælendur eru Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Pétur Gunnarsson rithöfundur og Jón Karl Helgason prófessor við Háskóla Íslands.

Frumflutt

29. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litli rauði trékassinn: Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi og vinir

Litli rauði trékassinn: Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi og vinir

Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi var velgjörðamaður listamanna á fyrrihluta tuttugustu aldar og ásamt móður sinni Unu Gísladóttur rak Unuhús, litla rauða timburhúsið í Garðastræti. Í þremur þáttum tileinkuðum Erlendi kynnumst við manninum gegnum augu vina hans, þeirra Þórbergs Þórðarsonar, Halldórs Laxness og Nínu Tryggvadóttur. Í Unuhúsi var rekið gistiheimili og voru þar haldnar kvöldvökur þar sem list, pólitík, heimsmál, heimspeki og trúmál voru rædd í þaula og gera ráð fyrir hafi verið skjól fyrir bæði fólk sem átti ekki í önnur hús venda sem og róttæka hugmyndafræði. Verður sjónum einnig beint rýminu Unuhúsi og því sem einkenndi það, sem og listinni sem var brjótast upp á yfirborðið á þessum tíma.

Viðmælendur eru Pétur Gunnarsson, Soffía Auður Birgisdóttir, Jón Karl Helgason, Rósa Magnúsdóttir, Halldór Guðmundsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson.

Umsjón hefur Sunneva Kristín Sigurðardóttir.

Þættir

,