Hljóðritun frá tónleikum sópransöngkonunnar Angel Blue og píanóleikarans Bryans Wagorn sem fluttu fjölbreytta efnisskrá í Eldborg, Hörpu 14. júní sl. á Listahátíð í Reykjavík.
Bandaríska sópransöngkonan Angel Blue hefur vakið heimsathygli á síðustu árum, þekkt fyrir mikla breidd í túlkun sinni og þykir hafa einstakan, silkimjúkan hljóm. Hún er tvöfaldur Grammy verðlaunahafi og hefur sungið í mörgum helstu óperuhúsum heims auk þess að koma fram á fjölda einsöngstónleika.
Efnisskrá:
Gabriel Fauré: Clair de lune, Mandoline, Fleur jetée
Claude Debussy: Clair de lune (einleikur á píanó)
Richard Strauss: Heimliche Aufforderung, Allerseelen, Befreit, Morgen, Cäcilie
Harold Arlen: I Wonder What Became of Me
George Gershwin: Our Love Is Here to Stay, Summertime
Kurt Weill: Youkali
Oscar Peterson: Ballad to the East from Canadiana Suite (einleikur á píanó)
Lee Hoiby: Lady of the Harbor, There Came a Wind Like a Bugle
Henry Burleigh: Deep River (útsetn.)
Hall Johnson: Ride On, King Jesus (útsetn.)
Aukalög:
Guillamo Puccini: O mio babbino caro, Vissi d’arte
Sergei Rachmaninoff: Spring Waters
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.