Konsert

Leyft öllum aldurshópum

Woodstock 1969

Í Konsert vikunnar förum við til Woodstock í ágúst 1969 á Woodctock hátíðina einu sönnu – og tilefnið er öðrum þræði að núna á mánudaginn verður Woodstock myndin sýnd í Sambíóinu í Kringlunni.

Hátíðin var auglýst sem Bethel Rock Festival og/eða Aquarian Music Festival – 3 days of love and music – ekki Woodstock Festival. Upphaflega átti hátíðin að fara fram í Woodstock skammt frá þeim stað þar sem Bob Dylan bjó á þeim tíma í uppsveitum New York fylkis – en það fékkst ekki leyfi til að halda hátíðina þar og þess vegna var hún haldin í Bethel sem er ekki langt frá Woodstock. Og einhverra hluta vegna hélst nafnið og hefur lifað í sögunni –Woodstock Festival. 32 hljómsveitir/listamenn komu fram þessa 3 daga og nætur í ágúst fyrir 57 árum.

Um það bil 186.000 miðar seldust fyrir hátíð en það voru meira en 400.000 sem mættu. Meira en helmingur borgaði ekki.

Í konsert vikunnar heyrum við upptökur frá Woodstock með CSN - janis Joplin og Koznic Blues Band - Creedence Clearwater Revival - Ricthie Havans - Canned Heat - The Who - The Band og Joe Cocker.

CSN / Suite Judy blue eyes

CSN / Blackbid

CSN / Marrakesh express

CSN / Helplessly hoping

CSNY / Mr. Soul

Canned Heat / Going up the country

Joe Cocker / Just like a woman

Joe Cocker / With a little help from my friends

Janis Joplin & Kozmic Blues Band / Piece of my heart

Janis Joplin & Kozmic Blues Band / Ball & chain

CCR / Born on the Bayou

CCR / Bootleg

CCR / Bad moon rising

CCR / Proud Mary

The Who / I´m free

The Who / Pinball Wizard

The Band / Tears of rage

The Band / This wheel´s on fire

The Band / I shall be released

The Band / The weight

Birt
Aðgengilegt til
Lengd

Konsert

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.

Þættir

,