Hljóðritun frá tónleikum Kammermúsíkklúbbsins sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 15. mars sl.
Á efnisskrá eru þrjú kammerverk eftir Dmitríj Shostakovitsj:
- Píanótríó nr. 1 í c-moll, op. 8.
- Sónata fyrir fiðlu og píanó í G-dúr, op. 134.
- Sónata fyrir víólu og píanó, op. 147.
Flytjendur: Judith Ingólfsson á fiðlu og víólu, Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og Vladimir Stoupel á píanó.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir