Inga Auðbjörg og Arndís Anna gegn Bolla Má og Berglindi Höllu
Í fjórða þætti keppa Inga Auðbjörg Straumland og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir við Bolla Má Bjarnason og Berglindi Höllu Elíasdóttur.

Jóhann Alfreð og Sandra Barilli stýra söng-glímunni Í góðu lagi á Rás 2 um páskana. Í þættinum takast tvö lið á við karaoke-þrautir eins og Gríptu viðlagið, Botnaðu textann og glænýju lagaþrautina Snakk og spaghetti sem og margar fleiri. Óvæntur söngvari mætir svo í hvern þátt og veitir liðunum smá hjálp, ásamt því að leggja fyrir þau ennþá flóknari söng-þrautir.