Hver sprengdi hafmeyjuna?

Leyft öllum aldurshópum

Fimmti þáttur: Hinsegin Nína og Reykjavík sem var

Í þessum þætti veltum við fyrir okkur menningargengi Nínu hér á landi. Nína var listamaður en hún var líka kona og hún var líka hinsegin. Skiptir það máli? Við skoðum Reykjavík sem var og heimsækjum ættingja Nínu sem hefur sterka skoðun á því sem gerðist.

Viðmælendur: Gróa Björk Hjörleifsdóttir, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Margrét Elísabet Ólafsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hver sprengdi hafmeyjuna?

Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.

Þættir

,