Hver á landi fegurst er?

Fyrsti þáttur

Hvaðan kemur hugmyndin um útlit skipti máli? Eru þriggja ára börn orðin meðvituð um útlitsstaðla? Hvenær urðu fegurðarstaðlar til? Hver er saga fegurðarstaðla og hvernig birtast þeir okkur í Íslendingasögum? Reynt verður svara þessum og fleiri spurningum í fyrsta þætti.

Þáttastjórnandi: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Viðmælendur: Andri Steinþór Björnsson, prófessor í sálfræði, Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir, næringarfræðingur, Fríða Ísberg, rithöfundur, Katrín Helga Andrésdóttir, söngkona, Nína Hjálmarsdóttir, sviðshöfundur, Sólbjört Vera Ómarsdóttir, myndlistarkona og Sverrir Jakobsson, sagnfræðingur, Ingibjörg Eva Þórisdóttir, doktor í sálfræði og sérfræðingur í samfélagsmiðlanotkun unglinga.

Frumflutt

15. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hver á landi fegurst er?

Hver á landi fegurst er?

Það er gömul saga og ekki er hægt treysta því sem fyrir augu ber. Oft er flagð undir fögru skinni eða prins í frosklíki. Við látum samt blekkjast af útliti, drögum ályktanir um hvaða innri mann manneskja hefur geyma án þess hafa kynnst henni, refsum ófríðu fólki og veitum þeim fögru forskot.

Líffræði og menning virðast eggja mannkynið áfram í ákveðinni útlitsdýrkun. Þriggja ára byrjum við dæma út frá útliti og hefur það gríðarleg áhrif í gegnum æviskeiðið. Þrátt fyrir útlitsstaðlar virðast alltaf hafa fylgt okkur hafa þeir tekið stakkaskiptum í gegnum tíðina og hinn svokallaði fullkomni líkami í dag hefði eflaust ekki þótt sérlega tilkomumikill fyrir nokkur hundruð árum.

Kristlín ræðir við sálfræðinga, vísindamenn, dansara, baráttufólk, lýtalækni, sagnfræðing og alla vini sína til reyna komast því hvar og hvenær útlitsfordómar byrja, hvaða áhrif þeir hafa og hvort það hægt breyta hausnum á sér.

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Þættir

,