Hvernig voru stjörnur búnar til?
Una Magdalena, 7 ára, spyr hvernig stjörnur urðu til. En úr hverju eru stjörnur? Sævar Helgi Bragason, Stjörnu Sævar, svarar.
Jökull Hrafn, 7 ára, spyr hvað margar flugvélar hafa hrapað. En er vitað hversu margar flugvélar hafa endað í sjónum? Vera Illugadóttir, sem er með þættina Í ljósi sögunnar, svarar.

Fullt af spurningum, fullt af svörum!
Krakkar á öllum aldri spyrja spurninga um allt milli himins og jarðar og sérfræðingar svara.
Er eitthvað sem þig langar til að vita? Taktu upp spurninguna þína, mundu eftir að segja okkur nafnið þitt og aldurinn (þarf ekki að vera fullt nafn) og sendu í tölvupósti á [email protected].
Umsjón: Hera Guðmundsdóttir.