Hinseginleikinn

Leyft öllum aldurshópum

Fyrirmyndir

Að hafa einhvern til að líta upp til sem maður tengir við er gríðarlega mikilvægt. Jafnvel svo mikilvægt að skortur á slíkum fyrirmyndum getur gert það að verkum að maður á erfitt með að fóta sig og er smeykur við að vera maður sjálfur. Þessi þáttur er tileinkaður fyrirmyndum, en í honum fær ungur samkynhneigður maður, Alexander Aron Guðjónsson, að hitta sína hinsegin fyrirmynd, sem auðveldaði honum leiðina út úr skápnum. Hver sú fyrirmynd er kemur í ljós í þættinum.

Þátturinn er sá þriðji í sex þátta hlaðvarpsseríu um hinseginleikann, sem gefin er út í tilefni 50 ára afmælis Stonewall-uppþotanna í New York og 20 ára afmælis Hinsegin daga á Íslandi.

Þáttastjórnandi: Ingileif Friðriksdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hinseginleikinn

Í Hinseginleika-hlaðvarpinu verður fjallað um þá gríðarlegu samfélagsbreytingu sem orðið hefur verið hér á landi og um allan heim á síðustu árum og áratugum þegar kemur viðhorfi til hinseginfólks. Ingileif Friðriksdóttir stofnandi Hinseginleikans tekur viðtöl við íslenskt hinseginfólk sem sumt man tímana tvenna.

Þættir

,