Heilahristingur

Tónlistarhérinn - Fyrsti þáttur

Þessa páskana verður Tónlistarhérinn í loftinu á Rás 2. Átta lið etja kappi í fjórum skemmtilegum viðureignum og reyna verða Tónlistarhérinn. Við leggjum ýmsar tónlistarþrautir fyrir liðin, þau geta meðal annars valið sér þemu eða flytjanda úr ýmsum áttum og á 90 sekúndum reyna þau við lagalista úr þemanu þar sem þau eiga hafa upp á sem flestum titlum eða flytjendum áður en bjallan glymur. Jóhann Alfreð og Lovísa Rut spyrja spurninga og þeim til halds og trausts er Atli Már sem sérlegur bjöllu-, tíma- og stemmningsvörður. Hlustendur geta sjálfsögðu spreytt sig með og reynt finna sinn eigin tónlistarhéra! Í þætti dagsins mæta Reiðmenn eldingarinnar, þau Birna Rún Eiríksdóttir og Freyr Eyjólfsson liði Emeraldanna, þeim Villa Nagbít og Völu Eiríksdóttur í stórskemmtilegri viðureign.

Frumflutt

6. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heilahristingur

Heilahristingur

Hinn sívinsæli spurningaþáttur Heilahristingur snýr aftur um páskana þar sem boðið verður upp á léttan páskahristing.

Umsjón: Jóhann Alfreð Kristinsson.

Þættir

,