Fimmtíu og tveir

1. þáttur: Uppreisn og flótti

Í fyrsta þætti af Fimmtíu og tveimur er sjónum beint uppreisninni í Ungverjalandi, flóttanum yfir til Vínarborgar í Austurríki og viðbrögðum íslenskra stjórnvalda og Rauða krossins.

Viðmælendur:

Kjartan Ólafsson

Michael Þórðarson

Eva Jóhannsdóttir

Maríanna Csillag

Frumflutt

25. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fimmtíu og tveir

Aðfaranótt aðfangadags 1956 komu 52 ungverskir flóttamenn til Íslands með Gullfaxa. Þá höfðu Sovétmenn brotið á bak aftur uppreisnina í Ungverjalandi. Þetta var fyrsti hópur flóttamanna sem fékk hæli hér á landi fyrir tilstuðlan stjórnvalda. Í þáttunum er farið yfir undirbúning og framkvæmd þessara aðgerða og ljósi varpað á sögu og afdrif Ungverjanna.

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

,